Spjaldtölvur og snjallsímar
Uppsetning og aðstoð með spjaldtölvur og snjallsíma.
Ég býð upp á persónulega tækniaðstoð við tölvur, snjallsíma, spjaldtölvur, internetið, samfélagsmiðla og fleira. Ég er Rafeindavirki og Tölvunarfræðingur með víðtæka reynslu.
• Heimsóknargjald (30 mínútur innifaldar): 6.000 Kr.
• Er oftast við símann:
mánudaga – fimmtudaga: 17:30–21:00
laugardaga og sunnudaga: 10:30–16:00
Símsvari þess utan.
Ég heiti Einar Ársæll Hrafnsson og hef starfað við rafeindaþjónustu, tölvumál og upplýsingatækni í yfir 30 ár. Er menntaður Rafeindavirkjameistari og Tölvunarfræðingur. Ég ræði tæknimál á skiljanlegri íslensku. Finnst mjög gefandi að geta reddað smávandamálum og tala nú ekki um ef mér tekst að hjálpa fólki að verða sem mest sjálfbjarga í notkun á tæknilegum tólum.
Uppsetning og aðstoð með spjaldtölvur og snjallsíma.
Aðstoð með tölvur og tölvupóst (netfang), lykilorð og fleira.
Aðstoð við internettengingar, netvandamál og þráðlaus net (WiFi).
Aðstoð við tengingar á ýmsum tækjum við tölvur, t.d. prentara, skanna, lyklaborð og mýs.
Aðstoð við allskyns tæki og tæknimál almennt. Víðtæk reynsla.
Hvaða svæði er þjónustað?
Heimsóknir eru í boði á höfuðborgarsvæðinu. Símaaðstoð og fjaraðstoð er í boði hvar sem er.
Hvað má búast við að heimsókn taki langan tíma?
Það fer eftir umfangi hverju sinni. Það kemur oft á óvart hvað hægt er að gera mikið á þeim hálftíma sem innifalinn er í heimsóknargjaldinu. Stilla ýmislegt, tengja eitthvað tæki. Taka út hvað þarf að gera.
Fæ ég reikning?
Já — að sjálfsögðu. Hér er allt eins og á að vera. Reikningurinn kemur frá fyrirtækinu Sérlausnir ehf. sem er félag í minni eigu. Reikningurinn er sendur með tölvupósti innan tveggja virkra daga.
Hvernig greiði ég?
Það er hægt að greiða á ýmsan hátt:
• með millifærslu
• með peningum
• með greiðslukorti (er með posa)
• með greiðslukorti í gegnum heimasíðu